Til í slaginn

Velkominn í vinsældahópinn

Danmörk baby

atburður liðinn í

4 ár

5 mánuði

2 daga

Um mig

Nafn:

Davíð Bergþórs

Afmælisdagur:

5. október

Heimilisfang:

Hringbraut

Staðsetning:

keflavík

Faðir:

Bergþór

Móðir:

Hulda

Um:

Hress strákur.....(stutt ekki satt)

Tenglar

Færslur: 2008 Janúar

13.01.2008 20:52

Jájá ég veit

 Hi,

Já það hefur verið lítið um bloggað hérna, finnst bara svo fáir sem skoða þetta að ég er ekkert að drífa mig að blogga. En já eins og flestir vita þá er ég fótbrotin eftir vélsleða ævintýri sem er nú að ganga á 6 vikuna. Ég er að fara svo á miðvikudag að lata skera gifsið af mér og sem kemur sennilega endurhæfing og fl. svo aftur 28.Feb þá er ég skorinn aftur upp og fjarlægt ca. 10cm skrúfu sem var rekinn í gegnum pípuna og legginn til að halda þessu saman. Það verður reyndar bara staðdeyfing sem verður ekki einhvað sem mér hlakkar til. Svo er bara að sjá til hvernig fer með vinnuna, veit reyndar ekki hvað ég á marga veikindadaga inni en þetta vonandi lagast.

Svo erum við að spá í að leggja jeppanum þar sem við notum hann svo mikið í snatt og er hann kominn með svo marga galla núna að það er bara best að leggja honum og reyna að laga hann með tíma. Ef maður hefur hann gangandi þá kemur bara nýtt og nýtt í ljós, en við höfum verið að skoða station bíla helst bara með léttum kaupum og ekki endilega dýra bíla. Það er bara staðreynd að ef maður kaupir sér nýjan og flottan bíl þá má ekkert koma fyrir hann og svo líka mikil áhætta sem fylgir dýrum bílum. Eins og maður er búinn að vera að sjá þá er lánin búin að fara yfir það sem bílinn er metin á. Í þeim tilfellum þarf að borga með þessu sem er ekki gaman að gera þannig ég held að kaupin verða bara á bílum sem eru búnir að ganga í gegnum þetta skeið. Þá meina ég bílar sem eiga ekkert eftir að lækka meira, enda ef maður kemur jeppanum í lag þá er aldrei að vita hvað maður gerir. En við erum að reyna að selja sleðana ég er búinn að sjá það að ég á ekkert heima í vetrar sportinu ég vill komast í einhvað sumar sport aftur bara, jetskí eða mótorhjóla bransan. Enda ekkert sumar sem jafnast á það þegar ég keypti jetskí, sakna þess rosalega.
 
En ég fór í mat til mömmu og pabba í gær og voru með kjúklinga bryngur í BBQ sósu sem var mjög gott, en bara eitt sem ég komst að og þá ekkert sem mamma gat reddað. Það er að þeir eru farnir að sprauta kjúllan með pækil (saltvatn) svo hann þyngist og geymist lengur. Mér finnst þetta alveg týpist, það tapast allt bragðið af kjötinu. En mamma gat reyndar reddað því með þessari bragðgóðu BBQ sósu (homemade) en svo var mér boðið til sigga bróðir. Heima hjá sigga drakk ég 2 bjóra og ekkert meir en það voru aðrir sem voru komnir heldur meira í glas og voru farnir að fara í svoldið trúnó sem gerði mig svona að 16.hjóli á 4.hjóla bíl. Ég var helst bara til í að fara í tölvuna hjá sigga og fara í flight simulator til að stitta mig stundirnar. Svo var ég orðin svo þreyttur í löppini um að verða 2 og fólkið ekkert á leiðinni niðri bæ (ætluðu að fara um 1 með taxa) þannig ég hringdi í þóru og ath hvort hún gæti reddað mér fari, jújú ómar bjargvætturinn og katrin kærastan hans komu til að skutla mér heim. MJÖG þakklátur fyrir það!! svo þegar ég kom heim þá átti ég alveg orku eftir og ákvað að horfa á hot shots sem er eldgömul grínmynd. 

Eftir myndina fór ég bara að sofa, svo vakna ég við það að Þóra að koma inn um dyrnar sem ég skil ekki alveg hvernig hún gat miða við það að hurðin var læst og hún sót ölvuð. Svo hugsa ég ekkert meira um það held bara áfram að sofa, svo vakna ég aftur stuttu eftir og þá er hún að hóstandi og ælandi ofan í klóstið. Mér var mál að pissa þannig ég kalla á hana og bið hana um að færa sig og hún legst killiflöt á gólfið og tekur einhver óhrein föt og setur undir höfuðið. Ég pissa bara og fer svo bara upp í rúm og loka millidyra hurðini til að vera ekki að hlusta á þetta kúunarhljóð. Svo sofna ég bara og vakna aftur svo hálftíma eða svo síðar og þá er þóra kominn upp í rúm og er að gera þetta kúunar hljóð og hóstandi ofan í koddan. Ég segi henni að fara fram og æla frekar í klóstið, nei nei við nennum ekki að hlusta á david, svo fer hún bara að hrækja á rúmmið og ég stekk á mína eina löpp og sæki fötu og hún heldur áfram að hrækja í rúmið. Ég sá aldrei hvort það kom einhver æla í rúmmið og segi henni að færa sig mín megin svo hún geti ælt í fötuna "ég er að fara gera það" segir hún altaf ég rikki sængini hoppa á einni inn í gesta herbergi með sængina og segi "nenni ekki þessu helvítis rugli!" og skelli hurðinni í gesta herbergi og fer að sofa. Svo ranka ég við mér kl 3 þar sem ég hafði enga klukku til að fylgjast með tímanum, kíki inn á klóset og þá var þessi ælu pollur á gólfinu. Get ekki líst því hvernig skapi ég var í, svo að ég vona það Þóra mín að þú tekur ekki ílla í það ef ég rek þig heim þegar þú ferð næst á djammið! nú verður einhvað að gerast í þessu. Allt í lagi að djamma en hafa limit á þessu og ekki vera að djamma til kl 8 á mornana eins og í morgun þegar ég leit á klukkuna.

En já þetta er sagan sem mér langaði að koma út, svo ég bið ykkur góða nótt!

08.01.2008 18:33

Ótitlað

1.Með hverjum verður næsta laugardagskvöld?
Þóru sennilegast ég fer ekkert út meðan ég er brotinn            

2. Hvað vakti þig núna í morgun?
Ég bara vaknaði sjálfur

3. Ef að þú myndir taka eiturlyfjatest núna, myndiru standast það?
Ekki spurning

4. Verður annaðkvöld gott kvöld?
Vonandi

5. kysstiru einhvern eða knúsaðir í dag?
Nei

6. Hver var seinasta manneskja sem að þú varst í bíl með?
Þóra

7. Hvað áttu marga myspace síður?
Enga

8. Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú vaknaðir í morgun?
Afhverju draumurinn hefði ekki geta haldið áfram

9. Líkar þér vel við skólann þinn?
Er ekki í skóla

10. Myndiru taka bullet fyrir hvern sem er ?
Bara fer eftir hver það væri

11. Hvað myndiru vilja búa?
Í höll

12. Virka sambönd með mikilli fjarlægð?
Hef ekki trú á því

13. Hvað viltu vera þegar þú verður orðin eldri?
Bara hamingjusamur og vita að ég hafi gert það sem mig langaði að gera

14. Hvað sérðu þig í lífinu eftir 5 ár?
Ekki hugmynd

16. Hvar myndiru vilja vera núna?
Universal studios - heyrt að það sé staður til að vera á

17. Hver var seinasta manneskjan sem að sendi þér myspace comment?
Ef ég bara vissi

18. Hve oft ferðu inná myspaceið þitt?
Nei

19. Viltu frekar tala í símann heldur en á msn ?
Frekar MSN, miklu djarfari eða segja það sem mér dettur í hug. Þá slepp ég við hissa svipin ef ég segi einhvað asnalegt

20. Hve mörgun bílslysum hefuru lent í?
1 Stóru, 1 Meðal, og þó nokkru smátjóni

21. Hlustaru á tónlist á hverjum degi?
Helst bara alltaf

22. Ferðu ennþá í trick or treat
Ef það væri gert hérna á íslandi þá myndi ég gera það.

23. Hvað borðaðiru seinast?
Qisnoss or sum

24. Skrifaru hratt á lyklaborð?
Minnir 20-25 orð á mín

25. Hve marga hraðaakstrasektir hefuru fengið?
Eina held ég

26. Hvað gerðiru í kvöld?
Stundað tölvuna bara

27. Ef að þú hefðir einn heilan dag bara útaf fyrir þig, hvað myndiru gera?
Einhvað skemmtilegt, helst adrenalín tengt

28. Er eitthvað að angra þig?
Nei 

29. Saknaru einhvers?
já.

30. Hvað viltu vera að gera núna?
Fara í Lego

31.Ertu að hluta á tónlist núna?
Já,

32. Ertu í góðu skapi?
Alveg eins

33. Hvað ertu að fara að gera núna um helgina?
Fátt held ég bara

34. Ertu að tala við einhvern á meðan þú ert að þessu?
nei

35. Hvenær hefuru verið mest döpur í gegnum líf þitt?..
Man ekki eftir einhverju einu einstöku dæmi en hef átt alveg daga

36. áttu fleiri en einn gsm síma?
já en bara einn í notkun

37. notaru Ebay ?
Bara skoða

38. Hvað gerir þig reiða?
Stundum einföldustu hlutirnir, en oftast þegar einhvað gengur ekki upp

39. Hefur einhvertíma verið samið lag um þig?
Nei

40. Hefuru einhvertíma sungið á almannafæri?
Ræðum það ekkert

41. Hvaða lag gerir þig ánægða?
Lífð er yndislegt

42. Á hvað hlustaru áður en þú ferð að sofa?
Vill hafa þögn þegar ég fer að sofa

43. Ertu í vinnu?
Já en samt í veikindaleyfi eins og er

44. Hvað er inná iPodinu þínum ?
Á ekki ipod

45. Hve marga nána vini áttu?
Ekki hugmynd

46. Hvað gerir þig ánægða og glaða?
Þegar allt gengur upp

47. Ein ósk?
Hún rætist ekki ef ég segja hana

48. Hefuru einhvertíma elskað einhvern en verið hrædd að segja manneskjunni frá því?
Nei

49. Næstu tónleikar?
Ekki hugmynd

50. Nefndu eitt lag sem að á vel um líf þitt í dag?
Ekki humynd
  • 1
Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 10
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 26425
Samtals gestir: 11123
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:54:58